Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur mætir fullur sjálfstrausts á heimavöllinn: „Eins og að vera 14 ára aftur á hvítum teigum“
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 5. ágúst 2026 kl. 17:16

Dagbjartur mætir fullur sjálfstrausts á heimavöllinn: „Eins og að vera 14 ára aftur á hvítum teigum“

Íslandsmeistarinn í golfi 2025, Dagbjartur Sigurbrandsson, mætir til leiks á Korpúlfsstaðavelli í vikunni með það skýra markmið að verja titilinn. Kylfingur.is hitti Dagbjart á vellinum þar sem hann fór yfir væntingarnar, breytingarnar á Korpúlfsstaðavelli og sitt fyrsta ár í atvinnumennskunni.

„Titilvörnin leggst bara hrikalega vel í mig,“ segir Dagbjartur spenntur. „Þetta verður mjög spennandi, völlurinn er í frábæru standi og þetta verður skemmtileg áskorun.“

Miklar og góðar breytingar á Korpunni

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur ráðist í töluverðar breytingar á vellinum fyrir mótið og hafa nokkrar brautir verið lengdar með nýjum teigum. Dagbjartur segir áhugaverðar breytingar skoma vel út.

„Það er kominn nýr teigur á 2., 4. og 9. holunni, sem er orðin alveg alvöru par 3 hola. Svo er búið að lengja 11. holuna um tæplega 70 metra og þá 14. um svona 20 metra.“

Lengingin á 11. holunni, sem áður var mikil fuglahola, hún er orðin mun erfiðari.

„Já, þetta er orðin svona meiri par 5 hola núna. Maður var að slá dræver í æfingahringnum í dag í svolitlum mótavindi og ég átti 230 metra eftir í innáhögginu, svo er ekki mikið pláss í kringum flötina. Þetta er dálítið eins og tilfinningin að vera 14 ára að spila í fyrsta skipti af hvítum teigum!“

Engin pressa á heimavelli

Þótt Dagbjartur mæti sem ríkjandi meistari og spili á sínum heimavelli segist hann ekki finna fyrir mikilli pressu.

„Nei, nei. Það er náttúrulega meiri athygli á manni þar sem maður vann í fyrra og er núna á heimavelli. En sama hvernig þetta fer þá er maður alltaf að læra mikið og þroskast sem kylfingur. Þetta verður bara mjög gaman.“

Lifir drauminn á Nordic mótaröðinni

Árið 2026 hefur verið viðburðaríkt hjá Dagbjarti, en þetta er hans fyrsta tímabil sem atvinnumaður þar sem hann hefur látið að sér kveða á Nordic mótaröðinni.

„Það hefur gengið mjög vel. Maður er að læra mikið, spila á nýjum völlum og læra inn á umhverfið. Það hefur verið hrikalega gaman að ferðast og fá tækifæri til að lifa atvinnumannadrauminn.“

Hann segir að lífið á mótaröðinni sé í raun svipað og hann hafi búið sig undir, enda hafi hann fengið dýrmæt ráð frá reynsluboltum á borð við Birgi Leif Hafþórsson, Bjarka Pétursson og Harald Franklín Magnús.

„Það er gott að fá þeirra álit á því hvernig er að lifa þessum lífsstíl. Ég er bara rétt að byrja að læra og næsta skref eftir Íslandsmót er að fara í fyrsta stigs úrtökumót fyrir DP World Tour í Þýskalandi þann 8. september. Ég er að æfa stíft fyrir það,“ en Dagbjartur komst í gegnum fyrsta stigið af þremur í fyrra.

Stutt í þá bestu

Dagbjartur finnur að leikur hans á vel heima á meðal þeirra bestu. Hann hefur fjórum til fimm sinnum verið í baráttunni við toppinn á Nordic mótaröðinni á árinu, auk þess að hafa leikið í lokaúrtökumóti fyrir US Open síðustu tvö ár með stórstjörnum á borð við Alex Norén, Padraig Harrington og Davis Thompson.

„Þetta snýst um að gera færri mistök og slá á réttu staðina. Það skiptir öllu máli hvar boltinn lendir þegar maður hittir ekki alveg eins og til stóð. Ég er svipað högglangur og flestir og slæ nokkuð beint, en stutta spilið er eitthvað sem maður er alltaf að reyna að bæta. Þetta er þolinmæðisvinna.“

Fjárhagslega og baklandsmálum er einnig vel borgið hjá meistaranum.

„Það hefur gengið mjög vel. Ég er með frábært fólk á bak við mig og frábæra styrktaraðila. Það skiptir mig miklu máli að vera með gott bakland. Ég er í mjög góðum gír komandi inn í Íslandsmótsvikuna, búinn að æfa vel og ætla bara að njóta þess að spila,“ segir Íslandsmeistarinn að lokum.

Dagbjartur með Íslandsbikarinn sem hann vann í fyrsta sinn í fyrra á Hvaleyrinni. Kylfingur.is/pket.