Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Bjarni Þór valinn vallarstjóri ársins 2017
Kristinn V. Jóhannsson og Bjarni Þór Hannesson.
Þriðjudagur 20. febrúar 2018 kl. 22:34

Bjarni Þór valinn vallarstjóri ársins 2017

Í flokki golfvalla.

Aðalfundur samtaka íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi var haldinn á dögunum. Þar var Bjarni Þór Hannesson valinn vallarstjóri ársins 2017 í flokki golfvalla.

Bjarni Þór hefur starfað sem vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili frá árinu 2012 og má segja að Hvaleyrarvöllur hafi verið í frábæru ástandi nær allan þann tíma. Á síðasta ári voru svo þrjár nýjar holur teknar í notkun á vellinum sem þóttu vel heppnaðar.

Örninn 2025
Örninn 2025

Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var valinn vallarstjóri ársins í flokki knattspyrnuvalla en þetta er í fjórða skiptið sem Kristinn hlýtur þessi verðlaun. Hann fékk þau einnig árin 2012, 2013 og 2014.

Ísak Jasonarson
[email protected]