Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Blíða og fjör á Blush Open á Húsavík
Stemmningin var góð á Húsavík. Fleiri myndir má sjá á Facebooksíðu Golklúbbs Húsavíkur.
Miðvikudagur 29. júlí 2026 kl. 10:00

Blíða og fjör á Blush Open á Húsavík

Blush Open 2026 fór fram dagana 17.–18. júlí og tókst mjög vel. Alls voru 88 keppendur skráðir til leiks, eða 44 lið. Fyrri daginn var leikin Betri bolti og þann síðari Greensome. Veðrið lék við keppendur og stemningin var frábær alla helgina að því er segir á Facebooksíðu klúbbsins.

Mótinu lauk með glæsilegu lokahófi í golfskálanum þar sem Ölgerðin bauð upp á fordrykk og Golfskálinn (640 veitingar) framreiddi dýrindis tveggja rétta veislu

Seinni daginn fór fram búningakeppni sem þær Helga Dóra og Lilja Skarphéðins stýrðu af miklum myndarskap og veittu þær hin ýmsu verðlaun á lokahófinu. Það var svo Frímann, bæjarlistamaður Norðurþings sem lokaði kvöldinu og sló í gegn með gítar og söng

Úrslit:

1. sæti: Arna Kristín Hilmarsdóttir og Örn Unnarsson – 88 punktar

2. sæti: Heiðrún Líndal Karlsdóttir og Jón Arnar Jónsson – 85 punktar

3. sæti: Hlín Hlöðversdóttir og Guðmundur Jón Tómasson – 82 punktar

Nándverðlaun:

Braut 2/11:

Föstudagur 17. júlí: Knútur Bjarnason – 1,00 m

Laugardagur 18. júlí: Gulli Steppi – 1,20 m

Braut 4/13

Föstudagur 17. júlí: Hulda Þórey Garðarsdóttir – 1,04 m

Laugardagur 18. júlí: Hjörtur Sigurðsson – 1,34 m