Borgun einn af nýjum styrktar- og samstarfsaðilum GSÍ
Borgun og Golfsamband Íslands skrifuðu nýverið undir samning og verður Borgun einn af styrktar– og samstarfsaðilum GSÍ.
Í samstarfinu felast fjölmargir hlutir en má þar helst nefna að Borgunarmótið verður fjórða mót keppnistímabilsins á Eimskipsmótaröðinni 2016.
Borgunarmótið fer fram á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili þar sem keppt verður um Hvaleyrarbikarinn dagana 15.-17. júlí.
Að sögn Ólafs Þórs Ágústssonar, framkvæmdarstjóra Keilis, stefnir í frábært mót en lagt er upp úr því að gera Hvaleyrarbikarinn að árlegu móti þar sem einungis bestu kylfingar landsins hverju sinni fá þátttökurétt.
Nú fyrr í vikunni skrifaði forstjóri Borgunar, Haukur Oddson og framkvæmdastjóri GSÍ, Brynjar Eldon Geirsson undir samning þeirra á milli og voru þeir bjartsýnir á komandi samstarf:
„Borgun fagnar auknu samstarfi við golfhreyfinguna. Golfíþróttin er öflug fjölskyldu- og almenningsíþrótt þar sem mikill fjöldi fólks á öllum aldri tekur þátt. Stuðningur fyrirtækisins við Golfsamband Íslands er hluti af samfélagsstefnu Borgunar,“ sagði Haukur Oddson.
„Við hjá Golfsambandi Íslands erum afskaplega ánægð að fá Borgun inn í hóp öflugra samstarfsfyrirtækja okkar og bjóðum þau sérstaklega velkomin inn í golffjölskylduna. Borgunar-mótið er eitt af lokamótum Eimskipsmótaraðarinnar í ár og hluti af „final four“ úrslitakeppninni sem er nýjung á Eimskipsmótaröðinni,“ sagði Brynjar Eldon Geirsson.


