Dagbjartur í 10. sæti - fleiri Íslendingar í baráttunni
Dagbjartur Sigurbrandssson er í tíunda sæti og og bræðurnir Ragnar og Sigurður Arnar Garðarssyni eru í 15. og 18. sæti fyrir lokadaginn á úrtökumóti fyrir DP Evrópumótaröðin í Michendorf í Þýskalandi. Fimm aðrir íslenskir kylfingar eru meðal þátttakenda og komust allir í gegnum niðurskurðinn. Nítján kylfingar komast áfram úr þessu móti og þrír okkar manna eiga mjög góða möguleika á því.
Dagbjartur hefur leikið mjög stöðugt golf fyrstu þrjá dagana og er á sex undir pari. Hér má sjá skor Íslendinganna og stöðu:
Leiknar verða 72 holur en nítján efstu og jafnir komast áfram á annað stig úrtökumótanna úr mótinu í Þýskalandi en tíu mót eru haldin fyrir fyrsta stigið. Fjögur mót eru fyrir annað stigið og verða haldin 29. okt til 1. nóvember. Lokaúrtökumótið fer fram 6.-11. nóvember.
(10. sæti) Dagbjartur Sigurbrandsson -4 (71-69-70)
15-17. sæti) Ragnar Garðarsson -3 (73-67-73)
(18.-20. sæti) Sigurður Arnar Garðarsson -2 (71-70-73)
(21.-25. sæti) Aron Júlíusson -1 (69-71-75)
(48.-52. sæti) Logi Sigurðsson +4 (74-72-74)
(48.-52. sæti) Tómas Eiríksson Hjaltested +4 (75-74-71)
(53.-56. sæti) Hlynur Bergsson +5 (76-72-73)
(57.-60. sæti) Johann Frank Halldórsson +6 (72-74-76)


