Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur með sex högga forskot fyrir lokadaginn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 8. ágúst 2026 kl. 17:52

Dagbjartur með sex högga forskot fyrir lokadaginn

Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur og ríkjandi Íslandsmeistari leiðir með sex höggum fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu á Korpúlfsstöðum. Hann lék á tveimur höggum undir pari á þriðja degi, 69 höggum.

Dagbjartur lék svipað golf á hina dagana og skilaði þriðja hringnum í röð undir pari, hann fékk örn á 7. holu og þrjá fugla en líka þrjá skolla.

Selfyssingurinn Aron Emil Gunnarsson er í 2. sæti á fjórum undir pari en hann lék þriðja hringinn einmitt á -4, fékk fjóra fugla og sextán pör. Hann vann sig inn í lokaráshóp á síðasta degi en það gerði einnig Hjalti Kristján Hjaltason sem lék á besta skori dagsins, sex undir pari, með fjóra fugla og einn örn og engan skolla. Glæsigolf hjá Hjalta.

Tómas Eiríksson Hjaltested er fjórði  á -2. Fimmti er Kristján Karl Guðjónsson höggi yfir pari. Síðan koma þrír kylfingar á tveimur yfir pari.

Staðan.

Aron Emil lék flott golf á þriðja degi og er í 2. sæti.