Draumahögg á Álftanesi og Akureyri
Það bætist stöðugt í hóp nýrra einherja en mörg draumahögg hafa verið slegin á þessari golftíð en ekki alls fyrir löngu rúlluðu boltar í holu á Akureyri og á Álftanesi.
Þann 24. júní mætti Elísa Björnsdóttir á 7. teig. Valið féll á ljótustu og ómerkilegusta boltann í settinu, enda var hann talin líklegri til að enda í mýrinni en á flötinni. Fyrr í vikunni hafði boltinn ekki drifið inn á flöt með járni, svo það varð að láta reyna á 4 tré. Smellurinn var fullkominn. Boltinn flaug lágt og hratt, beint í átt að holunni. Hljóðið þegar hann rakst í flaggstöngina bergmálaði um Álftanesið, segir í lýsingu á Facebook síðu klúbbsins.
Yfir til Akureyrar. Þar hafa tveir kylfingar farið holu í höggi síðustu daga.
Fyrst skal nefna Bjarna Ásmundsson sem sló með áttunni ofan í holu á 4. braut. Boltinn sveif hátt og myndarlega, lengti rétt við holu og þaðan beint ofan í.
Þá náði Jónas Björgvin Sigurbergsson náði draumahögginu þann 1. júlí á 18. holu á Jaðarsvelli.
Jónas sló höggið með 50 gráðu fleygjárni, eitt skopp og boltinn rúllaði ofan í holu - ekkert flókið hjá þessum öfluga kylfingi, segir á FB síðu GA.


