Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Enginn Tiger Woods tölvuleikur á næsta ári
Þriðjudagur 30. apríl 2013 kl. 09:59

Enginn Tiger Woods tölvuleikur á næsta ári

EA Sports hefur staðfest að þeir hafi hætt við framleiðslu á Tiger Woods 15 tölvuleiknum sem..

EA Sports hefur staðfest að þeir hafi hætt við framleiðslu á Tiger Woods 15 tölvuleiknum sem koma átti út á næsta ári. Þess í stað ætla þeir að fara í umfangsmiklar endurbætur á þessum vinsæla tölvuleik sem mun skila sér í betri tölvuleik sem kemur út árið 2015.

„EA Sports vildi fá meiri tíma til að vinna leikinn til þess að nýta þá nýju möguleika sem Play Station 4 og Xbox munu bjóða upp á,“ segir í frétt Kotaku um málið.

Örninn 2025
Örninn 2025

Fjárhagsleg staða EA Sports hefur verið til umræðu í Bandaríkjunum og það gæti hafa haft sín áhrif. Helstu tölvuleikjasérfræðingar eru þó á því að þetta sé skynsamleg ákvörðun hjá fyrirtækinu og muni skila sér í betri leik eftir tvö ár.