Evrópumótaröð karla: Bjerregaard leiðir | McIlroy góður
BMW PGA Championship mótið hófst í dag á Evrópumótaröð karla. Daninn Lucas Bjerregaard lék manna best og er með högg í forystu.
Bjerregaard lék fyrsta hringinn á 7 höggum undir pari en hann tapaði ekki höggi og fékk 7 fugla. Höggi á eftir honum eru Dean Burmester og Darren Fichardt sem eru báðir frá Suður-Afríku.
Norður-Írinn Rory McIlroy er jafn þremur kylfingum í 4. sæti eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á 5 höggum undir pari. McIlroy, sem sigraði á mótinu árið 2014, fékk alls 7 fugla á fyrsta hringnum og var í miklu stuði.
Annar hringur mótsins fer fram á morgun, föstudag. Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.
📹 The best of Rory McIlroy's opening 67 📹#BMWPGA #RolexSeries pic.twitter.com/j1TZnqU3A1
— The European Tour (@EuropeanTour) May 24, 2018
Seven birdies. No bogeys ✍🏼
— The European Tour (@EuropeanTour) May 24, 2018
Solo leader.#BMWPGA #RolexSeries pic.twitter.com/TJjNpQIfRI