Evrópumótaröð karla: Kieffer efstur þegar leik var frestað
Það er Maximilian Kieffer sem er í forystu þegar þriðji hringur er ný hafinn á Oman Open mótinu. Vegna sandstorms í gær var ekki hægt að ljúka leik á öðrum hring mótsins og því þurfti að ljúka við annan hringinn fyrst í morgun, áður en þriðji hringur gat hafist.
Kieffer hefur aðeins leikið þrjár holur á þriðja hringnum og er hann á parinu. Samtals er hann á fimm höggum undir pari, eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringi mótsins á 69 og 70 höggum.
Þrír kylfingar eru jafnir í öðru sæti á fimm höggum undir pari. Það eru þeir Gaganjeet Bhullar, Brandon Stone og Joachim B. Hansen.