Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Evrópumótaröð karla: Otaegui klifrar upp listann
Adrian Otaegui.
Mánudagur 21. maí 2018 kl. 13:00

Evrópumótaröð karla: Otaegui klifrar upp listann

Spánverjinn Adrian Otaegui fór með sigur af hólmi á móti helgarinnar á Evrópumótaröðinni, Belgian Knockout, en þetta var í annað skiptið á ferlinum sem hann stendur uppi sem sigurvegari á mótaröð þeirra bestu.

Otaegui er nú kominn upp í 14. sæti stigalistans með 715.506 stig og nálgast efstu menn. 

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Þess utan urðu litlar breytingar á stigalistanum í heild sinni. Patrick Reed er sem fyrr í efsta sætinu eftir sigurinn á Masters mótinu og Shubhankar Sharma fylgir fast á hæla hans.

Staða efstu manna á stigalistanum:

1. Patrick Reed, 2.216.000 stig
2. Shubhankar Sharma, 1.079.899 stig
3. Tommy Fleetwood, 1.023.671 stig
4. Kiradech Aphibarnrat, 1.008.760 stig
5. Jon Rahm, 978.174 stig

Hér er hægt að sjá stöðuna á listanum í heild sinni.

Ísak Jasonarson
[email protected]