Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Faldo byggir Black Sand í Þorlákshöfn - endurvekur 10 ára hugmynd
Faldo kom við á vallarstæði Black Sand á leiðinni frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. Það var kuldalegt um að litast en breski risameistarinn segir að völlurinn verði í heimsklassa.
Miðvikudagur 1. apríl 2015 kl. 13:01

Faldo byggir Black Sand í Þorlákshöfn - endurvekur 10 ára hugmynd

- hittir Íslendinga kl.17 í dag í versluninni Hole in One.

Breski stórkylfingurinn Nick Faldo kom til Íslands í morgun en hann er að setja í gang framkvæmdir við Black Sand golfvöllinn í Þorlákshöfn sem hann hannaði árið 2005. Faldo mun kynna verkefnið í versluninni Hole in One í Nethyl í Reykjavík í dag kl.17 og ræða við íslenska kylfinga.

„Svarti sandurinn fauk hreinlega í bankahruninu en nú er ég kominn í samband við íslenska fjárfesta sem hafa áhuga á að setja verkefnið í gang á nýjan leik. Ég mun verða hluthafi til hálfs og því er þetta vonandi freistandi fyrir Íslendinga. Þetta verður heimsklassa völlur eins og upphaflegu plönin voru og ég er þegar kominn í viðræður við Evrópsku mótaröðina um að fá mót eftir um 5 ár. Ef allt gengur að óskum varðandi fjármögnun munum við opna Svarta Sand árið 2020. Ég og Margeir Vilhjálmsson sem var einn af lykilmönnum verkefnisins á sínum tíma höfum verið í góðu sambandi og við munum nýta tímann vel í þá tvo daga sem ég verð hér á Íslandi til að fara yfir stöðuna. Vinna sem við gerðum á sínum tíma nýtist núna, til dæmis eru teikningar klárar og eins þekkjum við landið vel. Þetta gæti orðið risaskref fyrir íslenskt golf í framtíðinni,“ sagði Nick Faldo í símaviðtali við kylfing.is en hann og Margeir voru á leið til Reykjavíkur.

Nick Faldo mun eins og áður segir verða í verslun Hole in One og hitta Íslendinga og það er því von fyrir aðdáendur hans að fá eiginhandaráritun. Hole in One mun leggja til nýja Titleist bolta fyrir þá sem vilja fá eiginhandaráritun.

Faldo er einn besti kylfingur sögunnar en hann sigraði á sex risamótum, þrívegis á Masters og einnig þrisvar á Opna breska. Síðasti sigur hans kom á Masters árið 1996 þegar hann vann á eftirminnilegan hátt. Þá vann hann upp sex högga forskot Gregs Norman á lokadegi.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Frændurnir Margeir Vilhjálmsson og Páll Ketilsson sömdu við Faldo árið 2005 og þá var þessi mynd tekin. Nú verður sá samningur endurnýjaður með smá breytingum.

Faldo var í skýjunum með landssvæðið í Þorlákshöfn.

Nóg af svörtum sandi. Glompurnar verða allar úr svörtum sandi á Black Sand.

Faldo og aðalhönnuður Faldo design er Bandaríkjamaðurinn Steve Smyers.

Faldo renndi fyrir lax í tvígang þegar hann kom hér á upphafsárum Black Sand. Hér er hann með fallegan lax úr Soginu í Grímsnesi.

Hver vill ekki eiga nýjan Titleist bolta með eiginhandaráritun meistarans.