Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

FootJoy opnar í Útilífi
Föstudagur 27. mars 2015 kl. 17:28

FootJoy opnar í Útilífi

Í fyrsta sinn á Íslandi verður nú hægt að nálgast vörur úr öllum vöruflokkum FootJoy á einum stað en verslun Útilífs í Smáralind hefur opnað FootJoy deild. Í tilefni opnunarinnar verður mikið um að vera og sérfræðingar FootJoy á Íslandi verða á staðnum fram á laugardag ásamt mörgum af bestu kylfingum Íslands, tilbúnir að gefa góð ráð.

FootJoy (FJ) hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli hér á landi og þá sérstaklega síðastliðin tvö ár eftir að fatalína þeirra kom fyrst til Íslands. Flestir íslenskir kylfingar þekkja gæði FootJoy í golfskóm og golfhönskum og nú bætist við mjög svo spennandi fatalína. FootJoy á sér ríka sögu allt frá árinu 1857 og hafa þeir verið leiðandi framleiðendur á golfskóm síðan þá, árið 1979 kom fyrsti golfhanskinn frá FootJoy á markað og árið 1981 fyrstu golfsokkarnir. Með ríka hefð leggur FootJoy megináherslu á gæði og þægindi í hönnun sinni og allar vörur fyrirtækisins eru framleiddar með þarfir kylfinga að leiðarljósi.
Vöruflokkar FootJoy eru, golfskór, golfhanskar, golfsokkar, golfregnfatnaður, golffatnaður og golfaukahlutir.

Fatalínan fyrir árið 2015 er nú kynnt til leiks og er breiðari og flottari en nokkru sinni áður.
Fyrir herra eru fjórar tískulínur í boði, Atlantic, Nova, Verdant og Voyager ásamt frábæru úrvali af hefðbundnum vörum eins og t.d. sportpeysum, ullarpeysum, ullarvestum, buxum, og beltum.  Fyrir dömurnar eru bolir, peysur og nýju Hybrid vestin sem standa uppúr. Krakkalínan samanstendur af bolum og sportpeysum í þremur mismunandi litum.
Það var flott stemmning á opnuninni í gær þar sem boðið var uppá léttar veitingar og greinilegt að kylfingar eru spenntir fyrir nýju vörunum.
Hér meðfylgjandi eru myndir úr nýrri FJ deild í verslun Útilífs í Smáralind.

Örninn 2025
Örninn 2025