Foxy er sá fljótasti - leikhraði meistarans vekur athygli
Leikhraði Foxy eins og Ryan Fox er kallaður vakti athygli á OPNA mótinu, ekki síst á síðustu brautunum þar sem hann sýndi snilli sína. Hann tók ekki mikinn tíma í undirbúning fyrir lokapúttið sem tryggði honum sigur.
Hann var spurður út í þetta í viðtali eftir sigurinn. Foxy sagði frá því þegar hann var í golfmóti með Scottie Scheffler, besta kylfingi heims, í vor. Scottie var svo hissa á því hversu fljótur Foxy væri að hann spurði hann á níundu holu hvort hann væri með þeim í ráshópi. Nýsjálendingurinn ræddi einnig hversu fjarlægt það var í hans huga að sigra á OPNA mótinu fyrir ekki svo löngu síðan.



