Friðrik Þór myndaði þá bestu á OPNA mótinu
„Það er búið að vera mjög gaman að mynda þessa bestu kylfinga heims og punkturinn yfir i-ið að hafa fylgt sigurvegaranum leika sitt besta golf á þriðja keppnisdegi og fylgja þeim sem lenti í 2. sæti á lokadeginum,“ sagði Friðrik Þór Halldórsson, myndatökumaður sem var við störf á Royal Birkdale á OPNA mótinu í vikunni og á Opna skoska mótinu í síðustu viku.
Á fyrstu tveimur dögunum á Birkdale var Friðrik að fylgja Spánverjanum Jon Rahm, heimamanninum Tommy Fleetwood og Bandaríkjamanninum Jordan Spieth sem sigraði á The Open þegar það var haldið síðast á Birkdale, árið 2017.
Á þriðja keppnisdegi fylgdi okkar maður Ryan Fox frá Nýja Sjálandi en hann jafnaði vallarmetið í þeim hring þegar hann lék á 62 höggum. Í hollinu var fyrrverandi OPEN meistari, Xander Schauffele.
Á lokadeginum var linsan hjá Frikka á Bandaríkjamanninum Cameron Young og Skotanum Robert Mcintyre. Young kom í hús á níu höggum undir pari eftir að hafa leikið á 64 höggum lokahringinn og var forystusauður í klúbbhúsi, eins og það er kallað, þangað til Ryan Fox sem var í lokaráshópi, kláraði lokabrautina á fugli og fyrir sigri.
Frikki verður aftur við störf í vikunni á Women’s AIG Open sem verður í næsta nágrenni eða á Royal Lytham & St Annes vellinum í Blackpool. Þar mæta allar bestu golfkonur heims.



Scottie Scheffler, besti kylfingur heims.

+
Frikki tók ljósmynd af Dave Cannon, frægasta golfljósmyndara heims.



