Fyrsti Þjóðverjinn til að vinna Ástralska PGA-meistaramótið
Nicolai von Dellingshausen fagnaði öðrum sigri sínum á DP World Tour í Sydney sunnudaginn 29. nóvember. Hinn 33 ára Þjóðverji lék lokahringinn á 72 höggum og lauk keppni á 272 höggum, 16 undir pari, tveimur höggum á undan næstu mönnum.
Sigurinn tryggir honum þátttökurétt á PGA-meistaramótinu í Bandaríkjunum árið 2027, hans fyrsta risamóti.
Daninn Nicolai Højgaard lék á 65 höggum á lokahringnum og fékk tvo erni á seinni níu holunum. Hann deildi öðru sæti með Haydn Barron frá Ástralíu og Kiradech Aphibarnrat frá Taílandi á 14 undir pari. Tom McKibbin, Alex Noren og Adam Scott voru meðal fjögurra kylfinga í fimmta sæti á 13 undir. Cameron Smith varð jafn í 18. sæti á átta undir pari.
Mótið á The Lakes var fyrsta mót keppnistímabilsins 2027 á DP World Tour mótaröðinni. Von Dellingshausen vann áður Austrian Alpine Open árið 2025.
Heimaðurinn Min Wo Lee reynir útgáfu af Víkingaklappinu.
Min Woo Lee knows how to get a party started 🕺
#AusPGA https://t.co/dWYeAGMOHH
— DP World Tour (@DPWorldTour) November 29, 2026


