Gott golf á lokamóti LEK - landslið karla keppir í Eistlandi
Heldri kylfingar á LEK mótaröðinni léku vel á síðasta móti sumarsins sem fram fór á Korpunni síðasta laugardag.
Steinunn Sæmundsdóttir, GR, lék á 72 höggum og Þórdís Geirsdóttir, GK, á 73 í 50 + kvenna.
Frans Páll Sigurðsson, GR, lék á 71 höggi og þeir Gauti Grétarsson, NK, og Ólafur H. Jóhannesson, G.Seb. á 73 höggum. Þá var góður árangur í punktakeppninni.
Glæsileg verðlaun voru í boði en mótið var styrkt af Örninn Golf.
LEK landslið 50 + karla hefur leik í dag 30. ágúst á Evrópumóti liða í Eistlandi. Leikið verður á Estonian golvellinum.
Í íslenska karlaliðinu eru:
Sigurbjörn Þorgeirsson
Halldór Á. Ingólfsson
Ólafur H. Jóhannesson
Tryggi V. Traustasn
Ásgeir J. Guðbjartsson
Jón G. Traustason.
Tuttugu og fjórar þjóðir taka þátt. Fimm skor af sex telja í höggleik. Eftir þrjá daga verður raðað í riðla og leikin holukeppni.