Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta sinn
Guðrún Brá Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er Íslandsmeistari í golfi kvenna 2026 eftir spennandi lokadag á Korpúlfsstaðavelli. Þetta er fimmti Íslandsmeistaratitill Guðrúnar en hún sýndi styrk sinn í lokahring þegar Elsa Maren Steinarsdóttir jafnaði við hana eftir sex holur. Guðrún náði aftur forystu á næstu holu og lét hana ekki af hendi eftir það.
Guðrún tapaði höggi á fyrstu braut en bæði Elsa Maren og Ragnhildur voru í betri gír fyrstu sex brautirnar og á sjöttu holu jafnaði Elsa við Guðrúnu eftir að hafa sett fuglapútt ofan í. Ragnhildur var höggi á eftir. Á sjöundu fékk Guðrún hins vegar örn, tvö undir par þegar hún setti inn á flöt í tveimur höggum og setti niður langt pútt. Eftir fyrri níu holurnar var Ragnhildur á þremur undir pari og bara höggi á eftir Guðrúnu sem fékk síðan fugl á tíundu holu. Eftir það náðu hinar ekki að ógna Keiliskonunni alvarlega. Ragnhildur lék síðustu níu holurnar illa og Elsa tapaði líka þremur höggum en Guðrún lék af öryggi, kláraði hringinn á pari og sigraði að lokum með fimm högga mun.
Elsa Maren endaði önnur á fimm höggum yfir pari. Ragnhildur var tveimur á eftir henni, á +6. Þær þrjá voru í sérflokki í kvennaflokki.



