Guðrún Brá stefnir á fimmta Íslandsmeistaratitilinn - þrjá konur í sérflokki
Guðrún Brá Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og ríkjandi Íslandsmeistari er með þriggja högga forskot fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu á Korpúlfsstaðavelli en hún er á höggi undir pari. Guðrún lék lokahringinn á tveimur yfir pari, 73 höggum.
Hin brosmilda Skagakona, Elsa Maren Steinarsdóttir er í öðru sæti á tveimur höggum yfirpari en hún lék þriðja hringinn á þremur yfir pari, 74 höggum.
Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er þriðja á þremur yfir pari. Hún lék best allra kvenna í dag á höggi undir pari, 70 höggum.
Þessar þrjá eru í sérflokki og má búast við spennu á lokadagi.
„Þetta var í góðu lagi, þolinmæðisgolf í frekar erfiðum aðstæðum,“ sagði Guðrún sem er fjórfaldur Íslandsmeistari eins og faðir hennar, Björgvin Sigurbergsson og stefnir á að bæta þeim fimmta við.


