Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hjalti setti vallarmet - sextán ára í lokaholli á Íslandsmóti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 8. ágúst 2026 kl. 22:37

Hjalti setti vallarmet - sextán ára í lokaholli á Íslandsmóti

Ungir kylfingar hafa verið í sviðsljósinu á Íslandsmótinu á Korpúlfsstaðavelli. Hjalti Kristján Hjaltason, GKG, 16 ára kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar setti nýtt vallarmet á Korpúlfsstaðavelli á þriðja keppnisdegi þegar hann lék á 66 höggum, sex undir pari, höggi betur en forystusauðurinn gerði á fyrsta degi.

Hjalti fékk fjóra fugla og einn örn og þrettán pör á þessum glæsilega golfhring við aðstæður sem Íslandsmeistarinn og forystusauðurinn í mótinu sagði að hefðu verið erfiðar.

Hjalti vann sig inn í lokaráshóp fjórða og síðasta keppnisdags en hann er á þremur undir pari eftir 54 holur (73-72-65). Hann hefur fengið tvo erni í mótinu, þá báða á 7. brautinni sem er par 5.

Hjalti hefur verið afrekskylfingur nánast frá því hann hóf golfleik. Í frétt á kylfingur.is frá árinu 2022 er sagt frá sigri hans á Íslandsmótinu í flokki 12 ára og yngri. Í frétt kylfings frá í vor segir frá úrslitum á Íslandsmóti unglinga sem fram fór í Þorlákshöfn. Þar sigraði Kristján Karl Guðjónsson sem var í lokaráshópi á þriðja keppnisdegi og er í 5. sæti, Hjalti varð annar í mótinu og þriðji Halldór Jóhannsson sem átti besta skor annars keppnisdags á Íslandsmótinu á Korpu (67 högg). Allt mjög ungir kylfingar.

Hjalti er ekki einn úr fjölskyldunni sem er við leik á Íslandsmótinu því systir hans, Pamela Ósk, er jöfn í 4. sæti í kvennaflokki. Þá var Hjalti Pálmason, faðir þeirra, afrekskylfingur en hann hefur verið á pokanum hjá syninum í mótinu.

Pamela Ósk er í 4. sæti í kvennaflokki.