Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Misjafnt gengi íslensku atvinnukylfinganna á mótum vikunnar
Hulda Gestsdóttir er í 7.-8. sæti stigalistans.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 8. ágúst 2026 kl. 14:59

Misjafnt gengi íslensku atvinnukylfinganna á mótum vikunnar

Íslensku atvinnukylfingunum í Evrópu gekk ekki misvel í mótum vikunnar. Haraldur Franklín komst ekki í gegnum niðurskurðinn á móti í Skotlandi en þær Andrea Bergsdóttir og Hulda Gestsdóttir enduðu í 30. og 36. sæti.

Haraldur lék hringina tvo á pari á Scottish Challenge mótinu á Schloss Roxburghe golfvellinum og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Hann er í 154. sæti stigalistans.

Andrea og Hulda kepptu á Himmerland vellinum í Danmörku og þar voru aðstæður erfiðar því sigurvegarinn, Moa Svednskjold frá Svíþjóð sigraði á fimm höggum yfir pari. Einungis fimm hringir undir pari skiluðu sér í hús í öllu mótinu.

Andrea Bergsdóttir lék hringina þrjá á +14 (80-72-78) og endaði jöfn í 30. sæti.

Hulda Clara lék á +16 (80-73-79) og endaði jöfn í 36. sæti.

Lokastaðan.

Á stigalistanum er fyrrnefnd Moa í sérflokki, efst með 1632 stig. Hulda Gestsdóttir er í 7.-8. sæti með 759.50 stig. Ragnhildur Kristinsdóttir sem lék ekki með á móti vikunnar, heldur á Íslandsmótinu í Reykjavík, er í 12.sæti með 681.65 stig. Andrea er í 30. sæti með 346.61 stig.

Sjö efstu vinna sér þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni 2027.