Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hækka aldurstakmark til leigu á golfbílum í kjölfar óhapps
Fimmtudagur 25. júní 2026 kl. 09:54

Hækka aldurstakmark til leigu á golfbílum í kjölfar óhapps

Forráðamenn Golfklúbbs Kópavogs og Garðarbæjar hafa ákveðið að hækka aldurstakmark til leigu og aksturs golfbíla í 25 ár en það var áður 17 ár. Þetta var gert í kjölfar óhapps í vikunni.

„Það hefur færst í vöxt að ungir kylfingar leigja hjá okkur golfbíla hjá okkur. Því miður hefur þetta leitt til þess að hætta hefur skapast af notkun þeirra. Núna í vikunni varð óhapp sem hefði getað endað með ósköpum en sem betur fer urðu ekki slys á fólki en töluverðar skemmdir urðu á golfbílnum.

Í ljósi þessa höfum við ákveðið að hækka aldurstakmark til leigu og aksturs golfbíla GKG í 25 ár, var áður 17 ár. Einstaklingar sem leigja af okkur golfbíla þurfa að sýna starfsfólki ökuskírteini í gegnum Island.is. Jafnframt þurfa þeir að kvitta undir ábyrgðaryfirlýsingu,“ segir í tilkynningu frá GKG.