Háskólagolfið: Guðrún Brá endaði jöfn í 9. sæti
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golfið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Fresno State, luku í gær keppni á Mountain West Women´s Golf Championship.
Guðrún Brá lék vel í mótinu en hún lék á 4 höggum yfir pari í heildina (72,74,74) og endaði jöfn í 9. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var þar að auki á besta skorinu í sínu liði.
Guðrún Brá hefur átt góðu gengi að fagna á sínum háskólaferli. Samkvæmt heimasíðu Fresno State var þetta í 10. skiptið sem hún endar í topp-10 í háskólamóti sem verður að teljast góður árangur. Guðrún Brá er nú á sinni síðustu önn í skólanum.
Fresno State endaði í fjórða sæti af 9 liðum á 25 höggum yfir pari. UNLV skólinn fór með sigur af hólmi eftir að hafa leikið á 4 höggum yfir pari í heildina.
Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.