Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Hjónavígsla á 19.holu - Ella Rósa er kylfingur vikunnar
Þriðjudagur 24. júlí 2012 kl. 12:45

Hjónavígsla á 19.holu - Ella Rósa er kylfingur vikunnar

Elín Rósa Guðmundsdóttir eða Ella Rósa eins og hún er kölluð er kunnuglegt andlit á Hlíðavelli í Mosfellsbæ en þessi brosmildi kylfingur er með mikla golfdellu...

Elín Rósa Guðmundsdóttir eða Ella Rósa eins og hún er kölluð er kunnuglegt andlit á Hlíðavelli í Mosfellsbæ en þessi brosmildi kylfingur er með mikla golfdellu og hana þekkja nánast allir í GKJ. Hún fer oft í golfferðir ásamt fjölskyldunni en bæði eiginmaður hennar og sonur, Jón Rafn og Óskar deila golfáhuganum. Ella hefur frá ýmsu að segja en hún er kylfingur vikunnar.

Byrjaðu að segja okkur aðeins frá sjálfum þér, starfi/námi, og fjölskylduhögum.
Ég er 51 árs, starfa á Bókhaldsstofunni Stemmu ehf., á tvo syni og fjögur barnabörn. Er gift Jóni Rafni Valdimarssyni fasteignasala og við erum svo heppin að spila bæði golf.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Ég fékk hálft sett og 10 tíma golfkennslu í afmælisgjöf þegar ég var fertug, frá systur minni og mági, sem búa í Svíþjóð.  Þetta var tilraun þeirra til að gera okkur hjónin að golffélögum, sem þeim tókst, nú hittumst við að jafnaði tvisvar til þrisvar á ári í golfferðum einhvers staðar um heiminn.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Hefur þú verið í öðrum íþróttum? Nei

Helstu afrek í golfinu? Íslandsmeistari í 3. flokki 35+ 2011

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?  Ég er svo heppin að eiga ekki svona neyðarleg atvik eins og maðurinn minn;  að slá boltann beint í sköflunginn á  Gesti Jónssyni þáverandi formanni GR eða fara holu í höggi á varabolta.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?  Helsti styrkleiki minn í golfi er hvað ég er búin að vara dugleg að fara til kennara alveg frá byrjun.

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir (innlendur og erlendur) og af hverju?  Tiger Woods, Adam Scott,  Luke Donald, Graeme McDowell og Lee Westwood þeir eru bara flottir ... punktur !!  Svo eru tveir íslenskir kylfingar sem eiga hug minn allan núna þessa dagana; Theodór Emil Karlsson GKj og Bjarki Pétursson GB.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?  Ég fór holi í höggi á 15. braut á Urriðavelli 17. ágúst 2009.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?  Get ekki gert upp á milli Rúnars Kristinssonar og Gulla Helga að ógleymdum snillingnum Magga Lár.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?  Þeir verða nú að teljast „frægastir“  Bjarki Pétursson og Ísak Jasonarson. 

Hvaða keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?  Holukeppni, af því það reynir mest á mann.

Ertu hjátrúarfull hvað varðar golf?  Nei

Hvert er uppáhaldshöggið í golfi?  Vippið sem fer í holu.

Besti golfvöllur sem þú hefur leikið á?  The Stadium Course á Bro Hof Slott Golf Club.

Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf? Golf er skemmtilegt, fólk sem virðir ekki leikhraða og golfreglur gerir golf ekki eins skemmtilegt.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik? Þolinmæði.

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli? Sumarið 2009 vorum við Jón minn félagar í Oddi, þegar við komum inn eftir golfhring 8. júní settumst við inn í skál til að fá okkur hressingu og þá tókum við eftir því að séra Hjálmar Jónsson sat á næsta borði við hliðina á okkur.  Það var eins og við hugsuðum bæði það sama.  Það næsta sem gerðist var að Jón minn skellti sér á skeljarnar og bað mín, þarna inni í skálanum.  Svarið sem hann fékk var einfalt „já elskan ef þessi maður þarna á næsta borði er til í að labba með okkur 18 holur á 17. júní og gefa okkur svo saman á nítjándu, þá segi ég já !!“  Séra Hjálmar sagði líka já!

Hvaða þrjá golfholur hér á landi eru í sérstöku uppáhaldi?  Bergvíkin á Leirunni, 17. í Vestmannaeyjum og 7. á Hlíðavelli. Allar eiga þær það sameiginlegt að þær reyna á taugarnar.

Staðreyndir:
Nafn:  Elín Rósa Guðmundsdóttir í daglegu tali kölluð Ella Rósa
Aldur: 51
Klúbbur: Kjölur Mosfellsbæ
Forgjöf: 16,0
Fyrirmynd:  Systir mín Árdís Brekkan
Ryderinn eða Opna breska? Bæði
Grafarholt eða Urriðavöllur? Urriðavöllur, nokkuð augljóst !
Arnold Palmer eða Gary Player? Æji báðir, eru svo mikil krútt!!
Uppáhalds matur:  Indverskur, sem maðurinn minn eldar.
Uppáhalds drykkur:  Sódavatn og rauðvín í sitthvoru glasinu.
Uppáhalds golfhola: 18. á Upsala GK
Erfiðasta golfholan: 17. í  Eyjum
Ég hlusta á:  Beinar útsendingar á Skjár Golf á meðan ég prjóna.
Besti völlurinn: Bro Hof í Svíðþjóð og Alcanda á Mallorca eru báðir hannaðir af Robert Trent Jones yr.  Get ekki gert upp á milli þeirra.  Dásamlegir vellir.
Besta skor (hvar):  84 högg á Hlíðavelli í sumar.
Besta vefsíðan:  Facebook
Besta blaðið: Gestgjafinn
Besta bókin: Alkemistinn
Besta bíómyndin:  Forest Gump
Besti kylfingurinn:  Tiger Woods

Golfpokinn:
Dræver:  PING Faith 12°
Brautartré:  Nancy Lopes 3 & 5
Blendingur/Hybrid:  PING Faith  26° & 30°
Járn: PING Faith
Fleygjárn: PING
Pútter: PING Faith
Hanski: Einhver nógu smart og í stíl við dressið.
Skór: Ecco Biom


Ella ásamt Helgu Rut að fylgjast með á meistaramóti GKJ