Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Hlynur Geir með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 12. ágúst 2023 kl. 18:59

Hlynur Geir með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn

Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson leiðir með fjórum höggum fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi á Urriðavelli eftir að hafa leikið á þremur undir á þriðja degi. Miklar sviptingar voru á hreyfingardeginum svokallaða sem þriðji keppnisdagur er jafnan kallaður. 

Hlynur Geir, sem er einn elsti keppandinn í mótinu, 46 ára, lék flott golf, fékk fjóra fugla og aðeins einn skolla. Andri Þór Björnsson úr GR sem var í forystu eftir 36 holur lenti í basli á fyrstu braut og tapaði þar þremur höggum og náði sér aldrei almennilega á strik eftir það. Sama má segja um atvinnumanninn Guðmund Ágúst Kristjánsson sem datt niður listann og er nú sjö höggum á eftir Hlyni Geir.

Suðurnesjamaðurinn Logi Sigurðsson lék á pari og er fjórum höggum á eftir forystusauðnum í 2. sæti. Frábær frammistaða hjá honum. 

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Í 3.-4. sæti eru þeir Aron Emil Gunnarsson, einnig frá Selfossi og Birgir Björn Magnússon úr Keili. 

Besta hring dagsins átti þó Ingi Þór Ólafsson úr Mosfellsbæ, hann jafnaði vallarmetið sem var sett á öðrum degi og er kominn í 6.-9. sæti.

Hlynur hefur oft verið ofarlega á Íslandsmóti mörgum sinnum en aldrei orðið Íslandsmeistari í höggleik. Nokkuð magnað að Selfoss eigi tvo kylfinga í efstu þremur sætunum en Aron Emil er ungur og efnilegur kylfingur.

Staðan.

Logi Sigurðsson er í 2. sæti.