Hlynur og Dagbjartur í toppbaráttunni - Haraldur þarf góðan hring
Haraldur Franklín byrjaði illa á móti í Frakklandi en Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson eru í toppbarátunni í Stokkhólmi.
Haraldur Franklín Magnús er á Áskorendamótaröðinni, Hotel Planner Tour, þeirri næst sterkustu í Evrópu. Hann lék fyrsta hringinn á tveimur yfir pari, 74 höggum. Hann fékk tvo tvöfalda skolla og einn skolla en bætti það upp með þremur fuglum. Hann þarf að fá góðan annan hring til að komast í gegnum niðurskurðinn.
Haraldur flaug frá Skotlandi þar sem hann tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir OPNA mótið, The Open á þriðjudaginn. Hann hefur því líklega ekki náð æfingadegi í Frakklandi.
Hlynur Bergsson er jafn í 6. sæti á Mastercard móti á Nordic mótaröðinni, þeirri þriðju sterkustu í Evrópu. Hann hefur leikið á tveimur undir pari, 72-74 og er fjórum höggum frá efsta sætinu.
Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari 2025, heldur áfram góðu gengi á mótaröðinni. Hann er jafn í 8. sæti á höggi undir pari, 73-70.


