Hola í höggi á Akranesi
Frumherjarbikarinn fór fram laugardaginn 13. maí á Garðavelli og þar urðu hlutskarpastir Axel Fannar Elvarsson án forgjafar og Theódór Freyr Hervarsson með forgjöf.
Frumherjarbikarinn er innanfélagsmót hjá Golfklúbbi Leyni með mikla hefð allt aftur til ársins 1986.
Einn keppandi, Birgir Arnar Birgisson, fór holu í höggi á 18. holu. Að sögn Bigga þá var vindur í bakið en hann sló með níu járni á þessari tæplega 130 metra löngu par 3 holu.
Helstu úrslit mótsins voru eftirfarandi:
Höggleikur með forgjöf
1. Theódór Freyr Hervarsson, 65 nettó
2. Ísak Örn Elvarsson, 69 nettó
3. Heimir Eir Lárusson, 71 nettó (betri á seinni níu)
Höggleikur án forgjafar (besta skor)
1. Axel Fannar Elvarsson, 76 högg
Nándarverðlaun á par 3 holum
3.hola, Sigurður Elvar Þórólfsson 1.73m
8.hola, Emil Kristmann Sævarsson 2.28m
14.hola, Guðlaugur G. Kristinsson 7.7m
18.hola, Birgir A. Birgisson „hola í höggi“