Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Hótel Hamar með stráka- og stelputilboð í september
Fimmtudagur 2. september 2010 kl. 09:26

Hótel Hamar með stráka- og stelputilboð í september

Hótel Hamar, sem staðsett er við Hamarsvöll í Borgarnesi, hefur bryddað upp á skemmtilegum tilboðum í september sem eru sérsniðin hefur stráka- og stelpuhópa. Hótel Hamar hefur verið starfandi frá árinu 2005 og verið vinsælt meðal kylfinga. Tilboðin sem hér um ræðir má sjá hér að neðan.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

STRÁKATILBOÐ Í SEPTEMBER: Smalaðu vinunum eða vinnufélögum í golf á Hamri og þú færð frítt ef þú mætir með tvö 4 manna holl. Innifalið: Golf, gisting með morgunverði, grillveisla og heitir pottar. 13.500 kr á mann í tveggja manna herbergi.

STELPUTILBOÐ Í SEPTEMBER: Átta stelpur sem koma í golf og gistingu á Hamri í september fá dúndurmóttökur: Golf, gisting og morgunverður, Hressandi haustsúpa og dýrðleg súkkulaðikaka á eftir. 11.900 kr á mann í tveggja manna herbergi. 8. stelpan fær frítt (ef þið verið fleiri en 15 splæsum við vinningi í mótið).

Hér má finna heimasíðu Hótels Hamars

Myndir/Kylfingur.is og Hótel Hamar.