Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Íslendingar eru magnaðir - segir Peter Salmon
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 11. febrúar 2022 kl. 12:08

Íslendingar eru magnaðir - segir Peter Salmon

„Mér finnst mjög gaman að senda fólk í golf til útlanda og vera með fólki á golfvöllum úti í heimi. Við höfum farið mjög víða, t.d. til Indlands, Kína, S-Afríku, Mexíó og víðar. Íslendingar eru mjög skemmtilegir og ég hef eignast marga góða vini í gegnum golfið frá því ég kom til Íslands fyrir meira en fjörutíu árum síðan,“ segir Peter Salmon, eigandi VITA-golf ferðaskrifstofunnar en hann var gestur Sigurlaugar M. Jónasdóttur í þættinum Okkar á milli á RÚV.

Peter er áhugaverður maður og elti ástina til Íslands. Hann er Englendingur en fæddur í Hong Kong og ólst upp við allsnæktir hjá foreldrum sínum sem voru m.a. með þjóna á heimilinu. Hann segir frá því í viðtalinu hvernig líf hans breyttist þegar hann fór á heimavistarskóla aðeins 7 ára gamall.

Peter segir Íslendinga magnaða á mörgum sviðum, þessi litla þjóð sem hefur náð frábærum árangri í íþróttum og á fleiri sviðum.
Hann jánkar því að hann sé orðinn Íslendingur en segist hafa verið hissa þegar hann var fyrstu jólin á Íslandi og skildi ekki alveg hefðina hér á landi gagnvart mat og fleiru.

Hér má sjá viðtalið við Peter Salmon.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24