Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Íslenska golfsagan í heild sinni í Golf á Íslandi
Hjónin Steinar Lúðvíksson og Gullveig Sæmundsdóttir ritstýrðu Golf á Íslandi bókinni. Myndir/Kylfingur.is
Miðvikudagur 28. nóvember 2012 kl. 11:09

Íslenska golfsagan í heild sinni í Golf á Íslandi

Ólafur Rafnsson, forseti Íþróttasambands Íslands, fékk afhent fyrsta eintakið af bókinni Golf á Íslandi sem..

Ólafur Rafnsson, forseti Íþróttasambands Íslands, fékk afhent fyrsta eintakið af bókinni Golf á Íslandi sem spannar sögu golfíþróttarinnar á Íslandi. Bókin kemur út í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Það eru hjónin Steinar J. Lúðvíksson og Gullveig Sæmundsdóttir sem skrifuðu bókina sem kemur í tveimur bindum. Ritið er samtals 800 blaðsíður að lengd og prýðir yfir 1.000 ljósmyndir.

„Þetta er mikið ævintýri og ótrúlegt hvað hefur gerst á 70 árum,“ segir Steinar og Gullveig tekur í svipaðan streng. „Það er ótrúlegt hvað hinir einstöku golfklúbbar hafa afrekað með lítið á milli handanna en náð miklum árangri fyrir tilstuðlan eljusemi og vinnu margra dugnaðarforka.“

Frosti Eiðsson myndstýrði bókinni og eru margar fróðlegar myndir í bókinni sem gaman er að skoða. Í bókunum er jafnframt mikill fjöldi af skemmtilegum sögum úr golfíþróttinni sem gaman er að lesa. Bókina má nálgast í helstu bókaverslunum um allt land og er tilvalin jólagjöf fyrir kylfinginn.


Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, fékk fyrsta eintak Golfs á Íslandi.


Lucinda Grímsdóttir og Helgi Daníelsson aðstoðuðu með þátt eldri kylfinga í bókinni.


Ritstjórarnir Gullveig Sæmundsdóttir og Steinar J. Lúðvíksson ásamt Frosa Eiðssyni, myndritstjóra og Jóni Ásgeiri Eyjólfssyni, forseta GSÍ.


Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti GSÍ, í kastljósi fjölmiðla.


Edwin Rögnvaldsson, Páll Ketilsson, Friðþjófur Helgason, Viðar Þorsteinsson voru meðal þeirra sem hlutu fyrstu eintökin af bókinni. Þeir tóku margar myndir sem prýða bókina.