Jordan Spieth ekki lengur nr. eitt
Jordan Spieth missti sinn fyrsta niðurskurð í meira en þrjá mánuði í gær á The Barclays og missir þar af leiðandi stöðu sína sem númer eitt á heimslistanum til Rory McIlroy sem tekur ekki einu sinni þátt í mótinu en umskiptin verða á mánudaginn.
Aðeins Tom Lehman (eina viku) og Bernhard Langer (tvær vikur) hafa verið skemur á listanum sem númer eitt frá því hann var settur á laggirnar árið 1986.
Spieth, sem er einungis 22 ára, getur þó náð sætinu aftur í næstu viku á Deutsche Bank Championship en það veltur á frammistöðu Rory. Sá 22 ára hafði þó ekki mestar áhyggjur af því, heldur því hvernig hann spilaði á fyrsta móti FedExCup úrslitakeppninnar.
„Já, þetta var erfið vika,“ sagði Spieth sem spilaði 74 og 73 (+7 samtals) þessa tvo daga. „Ég þarf að leita svara við þessum leik mínum. Ég veit ekki alveg hvað skal til bragðs taka eða hvernig ég undirbý mig fyrir næsta mót en ég hef smá tíma til að finna það út.“


