Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Kylfingar þyrpast í golf í Leiru, í Sandgerði og í Þorlákshöfn
Mikil aðsókn hefur verið að Kirkjubólsvelli síðustu vikur og nú hafa Hólmsvöllur og Þorláksvöllur bæstst í hópinn með sumarflatir og opnun. Kylfingur.is/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 21. apríl 2020 kl. 13:24

Kylfingar þyrpast í golf í Leiru, í Sandgerði og í Þorlákshöfn

Þeir golfvellir sem hafa opnað eru mikið bókaðir næstu daga þegar veðurspá er góð. Hólmsvöllur í Leiru, Kirkjubólsvöllur í Sandgerði og Þorláksvöllur í Þorlákshöfn hafa allir opnað með sumarflötum og kylfingar á Íslandi eru greinilega orðnir golfþyrstir eftir erfiðan vetur og veirutíma.

Það sem vekur athygli er að hjá Golfklúbbi Suðurnesja eru 10 mínútur á milli ráshópa en 15 mínútur hjá hinum tveimur. Miðvikudag og fimmtudag 22. og 23. apríl eru nánast fullbókaðir í Leirunni en sömuleiðis í Sandgerði og í Þorlákshöfn. Um 200 kylfingar komast þannig í golf hjá GS en aðeins færri hjá hinum klúbbunum. Að sögn forráðamanna GS var um mistök að ræða sem var ekki hægt að lagfæra og því verða 10 mín. á milli ráshópa miðvikudag og fimmtudag en svo 15 mínútur frá og með föstudeginum 24. aprí. Starfsmenn frá GS munu fylgjast með að allt fari vel fram vegna COVID-19 þessa daga sem 10 mínútur verða á milli ráshópa. Á Golfbox má sjá að opið er á fleiri völlum eins og í Mosfellsbæ og í Eyjum en hefur hingað til eingöngu verið fyrir félagsmenn. Húsatóftavöllur opnar á fimmtudag.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Veðurspáin er góð næstu daga sunnanlands, það er helst að nefna rigningu fyrir hádegi á laugardag en annars er útlitið gott.

Golfvellir í Bretlandi eru lokaðir á tímum Covid19 og þar furðu kylfingar sig á því hvers vegna svo þurfi að vera og benda á ýmis atriði sem hafa verið til umræðu hér á Íslandi. Meðfylgjandi er myndskeið frá Gullane golfvellinum í Skotlandi. Þar eru vellirnir slegnir og hirtir en engir kylfingar mega spila. Talað hefur verið um að opna fyrir golf í Bretlandi einhvern tíma í maí.