Lang leiðir á Opna bandaríska á Oakmont

Brittany Lang er efst á Opna bandaríska meistaramóti kvenna sem fram fer á Oakmont vellinum. Hún lék fyrsta hringinn á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari og hefur eins höggs forystu.
Í öðru sæti eftir fyrsta hringinn eru Park In-bee, MJ Hur, Amy Yang og Kelli Shean. Michelle Wie lék afar illa á fyrsta hringum og skilaði inn skorkorti er taldi alls 82 höggum eða 11 höggum yfir pari.
Mörg af stærstu nöfnunum eru þó í toppbaráttunni og má þar nefna Christie Kerr, Paula Creamer og Christina Kim. Hin unga Alexis Thompson, sem aðeins er 15 ára gömul og talin ein efnilegasta golfkona í heimi, lék á 72 höggum í sínu fyrsta risamóti. Annar hringurinn í mótinu hófst nú fyrr í dag.
Myndir/golfsupport.nl


