Lee Westwood segir skilið við umboðsmann sinn „Chubby" eftir 24 ár
Samkvæmt fjölmiðlum ytra hefur Lee Westwood ákveðið að slíta samstarfi sínu við umboðsmann sinn til 24 ára, Andrew „Chubby" Chandler.
Alþjóðlegu íþróttasamtök Chandlers (International Sports Management) staðfestu þetta en neituðu að tjá sig frekar um málið. Westwood vildi heldur ekkert tjá sig um þetta mál.
Chandler hóf störf hjá ISM árið 1989 eftir 15 ár á Evróputúrnum og var Westwood einn af hans fyrstu kúnnum. Þeir hafa verið mjög nánir í gegnum árin og áttu meðal annars nokkra veðhlaupahesta saman.
Fjölmiðlar hafa greint frá því að mögulega sé um að ræða einhverjar lagadeilur milli Westwood og ISM.