Magnað golf hjá Örlygi sem vann í sextánda sinn
Örlygur Helgi Grímsson gerði sér lítið fyrir og varð klúbbmeistari Golfklúbbs Vestmannaeyja í sextánda sinn. Sóley Óskarsdóttir vann kvennaflokkinn þriðja árið í röð.
Hinn 45 ára Örlygur lék magnað golf og sigraði með sautján högga mun. Hann setti nýtt mótsmet á þrettán höggum undir pari og bætti metið um högg síðan í fyrra (67, 69, 64, 67). Hann er líka fyrstur til að leika alla hringina á undir pari. Ölli náði tveimur örnum og fékk sextán fugla. Í 2. sæti var Sigurbergur Sveinsson á +4 og þriðji varð Kristófer Tjörvi Einarsson á +15.
Sóley lék 72 holurnar á 332 höggum (80-79-91-82) og vann örugglega. Þuríður A. Óttarsdóttir varð önnur á 349 og þriðja var Sara Jóhannsdóttir á 384 höggum.



