Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Misjafnt gengi atvinnukylfinganna - Dagbjartur góður
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 16. ágúst 2026 kl. 13:55

Misjafnt gengi atvinnukylfinganna - Dagbjartur góður

Dagbjartur Sigurbrandsson lék gott golf á FootJoy Skåne Challenge mótinu á Nordic mótaröðinni á Söderslatts golfvellinum sem lauk á föstudag.

Dagbjartur endaði jafn í 15. sæti. Hann lék 54 holurnar á sjö höggum undir pari, 71-68-70.

Hlynur Bergsson varð jafn í 39. sæti en hann lék á höggi undir pari, 68-73-74.

Dagbjartur er í 28. sæti stigalistans, Sigurður Arnar Grétarsson í 32. sæti og Hlynur Bergsson í 33. sæti.

Guðrún Brá keppti á Sviss Open og var fjögur högg frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Migros Golfpark Holzhausern golfvellinum í Sviss. Guðrún lék hringina tvo á +4, 73-73. Hún er á biðlista til að komast inn í næsta mót, Írska meistaramótið, sem verður á K-Club í Dublin í Írlandi í lok mánaðar.

Haraldur Franklín lék á og var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Irish Challenge mótinu á Hotel Planner mótaröðinni eða Áskorendamótaröðinni í Evrópu. Hann lék hringina tvo á pari, 73-71.