Pétur og Erla klúbbmeistarar á Selfossi
Erla Rún Kaaber og Pétur S. Pálsson eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Selfoss 2026 eftir spennandi keppni. Umspil þurfti til að fá fram úrslit í meistaraflokki karla.
Pétur og Heiðar Snær Bjarnason voru jafnir eftir fjóra hringi en leiknar voru 14 holur i hverri umferð. Pétur hafði betur í umspilinu en þeir léku báðir á fjórum yfir pari. Þriðji varð Máni Páll Eiríksson á +8.
Hlynur Geir Hjartarson klúbbmeistari GOS lét aðra um titilbaráttuna núna en hann er framkvæmdastjóri klúbbsins og sinnti öðrum málum á mótinu.
Í efsta flokki kvenna á mótinu sigraði Erla Rún Caber með fjögurra högga mun en hún lék á +18. Önnur varð Katrín Embla Hlynsdóttir á +22 og þriðja Jóhanna B. Durhuus.


