Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

PGA: Noren og Simpson efstir á Honda Classic mótinu
Alex Noren.
Föstudagur 23. febrúar 2018 kl. 10:00

PGA: Noren og Simpson efstir á Honda Classic mótinu

Það eru þeir Alex Noren og Webb Simpson sem eru efstir eftir einn hring á Honda Classic mótinu. Erfiðar aðstæður voru í gær, en þó nokkur vindur var á svæðinu, og voru aðeins 20 kylfingar sem léku á undir pari.

Noren og Simpson léku á 66 höggum, eða fjórum höggum undir pari, og eru með eins höggs forystu. Þeir léku mjög svipað golf í gær og fengu þeir báðir til að mynda fimm fugla, einn skolla og restina pör. 

Fimm kylfingar eru jafnir í þriðja sæti á þremur höggum undir pari. Það eru þeir Morgan Hoffmann, Justin Thomas, Daniel Berger, Mackenzie Hughes og Louis Oosthuizen.

Tiger Woods er á meðal keppenda. Hann lék á 70 höggum og er eftir daginn jafn í 21. sæti.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.