PGA: Sebastian Munoz eykur forystu sína
Kólumbíumaðurinn Sebastian Munoz er enn í forystu þegar Greenbrier Classic mótið er hálfnað, og er hann kominn með þriggja högga forystu eftir daginn.
Eftir frábæran hring í gær, upp á 61 högg (-9), lék Munoz á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari. Á hringnum fékk hann fimm fugla, tvo skolla og restina pör. Hann er því samtals á 12 höggum undir pari og eru næstu menn þremur höggum á eftir honum, eða á níu höggum undir pari.
Það eru þeir Ben Martin og Hudson Swafford sem eru jafnir á níu höggum undir pari. Martin lék á 67 höggum (-3) í dag á meðan Swafford lék á 66 höggum (-4).
Þrír kylfingar eru jafnir í fjórða sæti á átta höggum undir pari og er því þéttur hópur sem fylgir Munoz eftir.