Ráðleggingar og heilræði sem standa upp úr
Á bandaríska golffréttavefnum Golf.com er skemmtileg grein þar sem að kylfingar, þjálfarar og kylfuberar svara þeirri spurningu hvaða ráð eða ráðlegging hafi reynst þeim best á lífsleiðinni. Hér fyrir neðan er stiklað á því allra helsta í greininni.
Steve Stricker, 46 ára, en hann hefur sigraði á 9 PGA mótum eftir að hann varð fertugur:
„Ég fékk ráð frá Jay Haas þegar ég var að nálgast fertugt. Ég spurði hann hvernig hann færi að því að leika svona vel. Hann svaraði: Ef þú ætlar að keppa, vertu vel undirbúinn, gefðu allt sem þú átt í verkefnið og ekki vera með hugann við að þú gæti verið heima hjá þér að gera eitthvað annað. Einbeittu þér að vinnunni og keppninni. Þetta var viðhorfið hans – golfið var vinna og þegar hann var heima hjá sér var fjölskyldan í forgangi,“ segir Stricker.
Johnny Miller, 66 ára sjónvarpsþulur og sigurvegari á 25 PGA mótum:
„Besta ráðið sem ég fékk snemma á ferlinum var frá Lee Trevino. Hann sagði að ef sveiflan væri ekki í lagi og ég væri taugaóstyrkur væri best að slá lágt. Greg Norman og Payne Stewart hefðu sigrað á fleiri risamótum ef þeir hefðu nýtt sér slíka tækni þegar þeir voru taugaóstyrkir. Tiger Woods er með þessa tækni og missir varla högg ef hann þarf á því að halda.
Bo Van Pelt, 38 ára PGA sigurvegari og Ryderbikarleikmaður:
„Þegar ég gerðist atvinnumaður sagði faðir minn; leiktu eins og þú værir blankur og svangur. Þú verður aldrei blankur eða svangur ef þú gerir það. Ekki taka öllu sem sjálfsögðum hlut og leggðu þig alltaf fram.“
Annika Sörenstam, 43 ára og einn besti kylfingur allra tíma á kvennamótaröðinni:
„Ég var á æfingasvæðinu sem barn og það byrjaði að rigna. Ég hringdi í pabba og bað hann um að sæka mig. Þegar við vorum að keyra í burtu horfði pabbi yfir æfingasvæðið þar sem að stór hópur var enn að æfa sig í hellirigningu. Hann stoppaði bílinn og sagði; Annika, í lífinu er ekki hægt að stytta sér leið að því að ná árangri.“ Ég gleymdi þessu aldrei og ég nota þessi orð enn í dag sem móðir eða í viðskiptalífinu.“
Graeme McDowell, 34 ára og sigurvegari á Opna bandaríska meistaramótinu.
„Árið 2010 tók það mig langan tíma að ná áttum eftir að hafa sigrað á Opna bandaríska meistaramótinu á Pebble Beach. Ernie Els kom til mín og sagði; „Njóttu þess og gefðu þér tíma til þess að njóta sigursins á stórmóti. Ég hef gert það í hvert sinn sem ég hef sigrað – því það veit enginn hvenær sá næsti kemur eða hvort hann komi. Við eigum að njóta þess og fagna þegar það á við – hvort sem það er í golfi eða lífinu.“
Bubba Watson, 35 ára og sigurvegari á Mastersmótinu:
„Þegar ég var 12 ára sagði faðir minn við mig: Þú getur valið að vera sá sem gerir hlutina og framkvæmir eftir eigin höfði og verið ánægður, eða verið sá sem eltir og gerir það sem aðrir hafa gert. Þetta sat eftir í höfðinu á mér og ég leik golf og æfi eins og ég vil gera það – það hefur gengið upp.“
Hunter Mahan, 31 árs og sigurvegari á fimm PGA mótum:
„Stundum missir maður stjórn á sér þegar hlutirnir ganga ekki upp – og maður sýnir það með látbragði og er að senda út þau skilaboð að maður sé betri en það sem maður er að sýna í það skipti. Ég var í slíku skapi á einu af mínum fyrstu mótum með Oklahoma State háskólaliðinu og ég var reiður og það sáu það allir. Þjálfarinn minn, Mike Holder, tók mig afsíðis og sagði: „Heldur þú að einhver sé að velta því fyrir sér hvernig þér gengur? Það ert þú, foreldrar þínir og kannski ég sem eru uppteknir af því hvernig þér gengur en öðrum er alveg sama. Liðsfélagarnir eru kannski að reyna að hressa þig við en á sama tíma er það eina sem þeir vilja er að sigra þig. Hættu því að láta eins og allir séu að hugsa um hvernig þér líður og gengur. Farðu bara út og spilaðu golf.“
Bill Harman, 63 ára, golfkennar og sonur Claud Harmon sem sigraði árið 1948 á Mastersmótinu:
„Faðir minn sagði þetta við mig og ég gleymdi því aldrei: „Ég veit ekki afhverju þú ert að æsa þig svona mikið, þú ert ekki nógu góður til þess að vera æsa þig.“