Ragnhildur og Hulda meðal tíu efstu í Svíþjóð
Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Gestsdóttir enduðu meðal tíu efstu á Swedish Strokeplay mótinu á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Mótið er hluti af LETAS mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu.
Ragnhildur Kristinsdóttir lék hringina þrjá á tveimur höggum undir pari og endaði jöfn í 5. sæti (74-72-71).
Hulda Gestsdóttir lék hringina þrjá á höggi undir pari og endaði jöfn í 9. sæti.
Andrea Bergsdóttir lék á fjórum yfir pari (77-71-75) og endaði jöfn í 31.sæti.
Hulda er í 6. sæti stigalistans með 723 stig, Ragnhildur er í 10. sæti með 526,5 stig og Andrea er 25. sæti með 244 stig. Sjö efstu í lok keppnistíðar vinna sér þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni.


