Rahm og Palmer taka stórt stökk á FedEx listanum
Nýr og uppfærður FedEx listi hefur verði birtur og eru það sigurvegarar helgarinnar, Jon Rahm og Ryan Palmer, sem eru hástökkvarar helgarinnar.
Matt Kuchar er enn í efsta sæti listans með 2030 stig og er forysta hans orðin 468 stig. Kuchar hefur unnið tvö mót á þessu tímabili og sex sinnum verið á meðal 10 efstu. Xander Schauffele er í öðru sæti með 1562 stig.
Rahm fer upp um 17 sæti eftir sigurinn á Zurich Classic mótinu og er hann nú í sjötta sæti með 1136 stig. Hann hefur nú unnið eitt mót á árinu og átta sinnum verið á meðal 10 efstu.
Palmer fer upp um 21 sæti fyrir sigurinn og er hann nú kominn í 19. sætið með 876 stig.
Hérna má sjá listann í heild sinni.