Rigning og mikil bleyta á fyrsta keppnisdegi á Korpúlfsstaðavelli - myndir
Íslandsfáninn prýðir 18. flötina á Korpúlfsstaðvelli í Reykjavík á fyrsta keppnisdegi á Íslandsmótinu í golfi. „Þetta gengur nokkuð vel en það hefur safnast mikil bleyta víða á vellinum og á mörkunum að það sé leikhæft,“ segir Ómar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur.
Á meðan veðurguðirnir hafa sent mikla bleytu eru þeir ekki vindasamir og skor kylfinga nokkuð gott í þessum aðstæðum sem eru oft krefjandi. 132 þátttakendur eru í mótinu en niðurskurður verður eftir tvo daga þar sem helmingur þátttakenda heldur áfram um helgina.
Korpúlfsstaðavöllur hefur verið lengdur verulega og er nú orðinn annar tveggja lengstu golfvalla á íslandi, yfir 6300 metrar, en Hvaleyrarvöllurinn þar sem mótið fór fram í fyrra er lengsti völlur landsins, örfáum metrum lengri en Korpan.
Hér má sjá uppfærða stöðu í mótinu.
Hér að neðan má sjá myndasyrpu frá keppni í kvennaflokki og síðasta ráshópi karla.



