Siggi Ingimundar náði draumahögginu eftir tuttugu ár
„Ég hélt að boltinn hefði farið yfr flötina og var bara að leita að honum þegar það var kallað, ‘það er bolti í holunni’,“ segir Sigurður Ingimundarson, kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja en hann fór holu í höggi á 9. flöt á Hólmsvelli í Leiru í gær.
Siggi sem er af þekktari körfuboltamönnum og enn þekktari körfuboltaþjálfari hefur leikið golf undanfarin tuttugu ár segist aldrei hafa verið nálægt því að fara holu í höggi. „Bara aldrei, skil það ekki,“ segir Siggi en hann hitti draumahöggið eins og hann vildi.
„Það var smá meðvindur í norðangolunni og ég ákvað að slá með 7-járni og sá hann fyrir mér hann lenda aðeins fyrir framan flöt og rúlla inn á - sem hann og gerði. Þegar við komum að flötinni sá ég ekki bolta á flötinni og hélt hann hefði rúllað yfir hana eins og hjá Stebba félaga mínum í hollinu. Við vorum að leita fyrir aftan flötina þegar Bebba kona Stebba sem var með okkur ásamt Höddu minni, ákvað að pútt út á undan og kallaði þá til okkar - um að það væri bolti í holu, sem var minn,“ segir Siggi sem ákvað að láta níu holur duga og fara í klúbbhús og fagna afrekinu með hollinu.
„Við skáluðum og auðvitað bauð ég meðspilurum, það er reglan. Ég spurði samt Guðmund Rúnar Hallgrímsson stórkylfing hvort höggið væri ekki gilt þó leiknar væru bara 9 holur, svona til öryggis.“
Siggi hefur verið duglegur í golfinu í sumar en hann hefur spilað golf í um tuttugu ár.
„Ég hef held ég aldrei spilað svona mikið golf en og við Hadda höfum verið mjög dugleg í sumar. Ég fann fyrir meiri áhuga einhvern veginn í vor og áfram í sumar. Það er gaman í golfi en svo er þetta toppurinn að fara holu í höggi,“ sagði Sigurður og hló.




