Sigurður efstur fyrir lokahringinn á Finnish International
Annar keppnisdagurinn á Finnish International Junior fór fram í dag og er GKG-ingurinn Sigurður Arnar Garðarsson efstur í flokki 14 ára og yngri. Alls taka 17 íslenskir keppendur þátt á þessu móti. Keppt í tveimur aldursflokkum hjá báðum kynjum, 14 ára og yngri, og 15-16 ára.
Staðan á mótinu:
Henning Darri Þórðarson úr Keili og Fannar Ingi Steingrímsson eru báðir í sjöunda sæti í flokki 15-16 ára á +6 samtals. Fannar Ingi átti erfiðan dag á flötunum en hann var með sjö þrípútt.
Saga Traustadóttir úr GR er í tólfta sæti í flokki 15-16 ára á +18 samtals.
Sigurður Arnar er með tveggja högga forskot í sínum flokki en hann hefur leikið á 74 og 73 höggum og er samtals á +3. Kristófer Karl Karlsson úr Kili og Ingvar Andri Magnússon úr GR eru jafnir í sjötta sæti í þessum flokki en þeir eru aðeins tveimur höggum frá þriðja sætinu. Í þessum flokki er leikið af gulum teigum - 5.600 metra langur völlur með krefjandi hröðum flötum með miklu landslagi.
Fararstjórar eru Úlfar Jónsson, Derrick Moore og Brynjar Eldon Geirsson:
Staðan hjá Íslendingunum fyrir lokahringinn er þannig:
Piltar 14 ára og yngri: (48 keppendur)
1. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG 74-73 (+3)
6. Kristófer Karl Karlsson, GKj. 82-74 (+12)
6. Ingvar Andri Magnússon, GR 75-81 (+12)
19. Ingi Rúnar Birgisson, GKG 86-78 (+20)
27. Magnús Friðrik Helgason, GKG 80-88 (+24)
Piltar 15-16 ára (60 keppendur)
7. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG 73-77 (+6)
7. Henning Darri Þórðarson, GK 77-73 (+6)
21. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 79-75 (+10)
30. Kristján Benedikt Sveinsson, GA 80-77 (+13)
37. Hlynur Bergsson, GKG 82-78 (+16)
44. Jóel Gauti Bjarkason, GKG 81-82 (+19)
44. Bragi Aðalsteinsson, GKG 81-82 (+19)
56. Helgi Snær Björgvinsson, GK 84-86 (+26)
Stúlkur 15-16 ára (33 keppendur)
12. Saga Traustadóttir, GR 82-80 (+18)
16. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 87-78(+21)
22. Eva Karen Björnsdóttir, GR 86-80 (+22)
24. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR 87-93 (+36)