Sissó hjálpar Ellý Ármanns í púttunum með frábærum árangri
Fjölmiðlakonan Ellý Ármanns tók tali af Sigurþóri Jónssyni, kylfingi úr Keili, og fékk hann til að aðstoða sig við púttin. Í viðtal á Vísi.is við Sissó sem hægt er að sjá með að smella hér.
Í púttkennslunni má segja að Sissó hafi náð hámarksárangri því Ellý setti niður langt og gott pútt með smá aðstoð frá Sissó sem er greinilega sjóðheitur um þessar mundir. Hann sigraði á Fitness Sport mótinu á Eimskipsmótaröðinni um síðustu helgi.
Hér má sjá þegar Ellý setti niður langt pútt eftir aðstoð frá Sissó.
Mynd/Kylfingur.is