Sjötti klúbbmeistaratitill Arons
Aron Snær Júlíusson varð klúbbmeistari GKG í sjötta sinn en Elísabet Ólafsdóttir tryggði sér klúbbmeistaratitilinn í fyrsta sinn. Alls voru 508 kylfingar skráðir til leiks sem þýddi rástíma alla daga frá kl. 7 að morgni og að seinustu kylfingar voru að koma í hús um 23:30 þegar lengst lét.
Aron lék hringina fjóra á parinu, 284 höggum. Jafnir í öðru sæti á 288 höggum voru Ragnar Már Garðarsson og Guðjón Frans Halldórsson en Ragnar hlaut annað sætið þar sem árangur hans var betri á seinustu 36 holunum.
Elísabet lék á 313 höggum og hafði betur eftir mikla baráttu á lokaholunum við Hrafnhildi Guðjónsdóttur sem lék á 316 höggum. Í þriðja sæti hafnaði María Kristín Elísdóttir á 331 höggi.
Keppt var í 26 flokkum, allt frá 10 ára og yngri til 70 ára og eldri þar sem yngsti keppandinn var á 9. ári og sá elsti á 88. ári.




