Skagakonan Elsa Maren leiðir eftir fyrsta hring hjá konum - setti vallarmet á Korpunni
Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi er með forystu eftir fyrsta keppnisdag í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Tuttugu og eins árs Skagakonan setti vallarmet og lék á fjórum höggum undir pari, 67 höggum, og er þremur höggum betri en ríkjandi Íslandsmeistari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili.
Elsa Maren lék fyrri níu holurnar á pari en hún fékk skolla á þremur brautum í röð, 9. til 11. og var ósátt við það. Hún setti heldur betur í gírinn og fékk sex fugla á síðustu sjö holunum með glæsilegri spilamennsku. „Ég hitti brautir og flatir og svo sullaði ég bara öllu í. Það fór bara allt ofan í, pútt af ýmsum lengdum,“ sagði Elsa Maren glöð eftir glæsilegan hring.
Eins og fyrr segir er Guðrún Brá, fjórfaldur meistari, í 2. sæti en hún lék á höggi undir pari, 70 höggum en Korpúlfsstaðavöllur er par 70 á kvennateigum. Völlurinn hefur aldrei verið leikinn lengri en hann er eftir breytingar og lengingu 5436 metrar. Það er um það bil lengd á klúbbteigum karla.
Í 3.-4. sæti koma þær Ragnhildur Kristindóttir úr GR og Eva Kristinsdóttir á tveimur höggum yfir pari, 72 höggum.

Guðrún Brá er í 2. sæti. Hér slær hún á 8. teig.

Eva Kristinsdóttir slær í bleytunni á 8. braut.

Ragnhildur Kristinsdóttir er högglöng.



