Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sló högg lífs síns og tryggði sér sigur á US Open
Miðvikudagur 17. júní 2026 kl. 06:50

Sló högg lífs síns og tryggði sér sigur á US Open

Bandaríkjamaðurinn Corey Pavin átti lokahögg inn á 72. flöt árið 1995 sem er án efa eitt af höggum US Open sögunnar. Pavin sló um 200 metra högg með 4-tré sem endaði rétt við stöng og tryggði honum sigur á mótinu.

Pavin var 35 ára á þessum tíma, nú 65 ára, hafði sigrað þrettán sinnum á PGA mótaröðinni og oft sagt að hann væri besti kylfingurinn þar sem hafði ekki sigrað á risamóti. Pavin fer hér í þessu myndskeiði yfir þetta skemmtilega „móment“ þegar hann sló högg lífsins.