Spenna fyrir lokadag OPEN á Birkdale
Á sólbrenndum og gulgrænum Royal Birkdale-velli á hreyfingardegi, voru sviptingar en Bandaríkjamaðurinn Sam Burns er með tveggja högga forystu þegar einn keppnisdagur er eftir á The Open 2026.
Bandaríkjamaðurinn er þekktur sem einn besti púttarinn í leiknum en hann sýndi meistaratakta með járnum og fleygjárnum og lék frábært golf, kom inn á 65 höggum og fylgdi eftir methringnum sínum á föstudaginn upp á 62 högg. Hann er á tíu höggum undir pari og leiðir með tveimur.
Á Opna mótinu skiptir reynsla oft máli en enginn núverandi risamótssigurvegari er innan þriggja högga frá forystunni – og frá árinu 2013 hefur aðeins einn maður komið lengra að til að lyfta Claret Jug-bikarnum.
Ryan Fox varð þriðji leikmaðurinn til að leika hring á 62 höggum í þessari viku, og jafnaði þar með lægsta skormet á risamóti, til að koma sér á átta högg undir par.
Hann deilir öðru sætinu með Si Woo Kim, á meðan Ryan Gerard og Lucas Herbert, sem leiddi eftir föstudaginn, eru höggi á eftir.
Ludvig Aberg, Bryson DeChambeau og Jackson Suber eru á sex höggum undir pari, á meðan vonir heimamannsins Tommy Fleetwood um tilfinningaþrunginn sigur aðeins þremur mílum frá uppvaxtarstöðvum sínum eru enn á lífi, jafnvel þótt hann sé fimm höggum á eftir.
Sam Burns átti ekki einu sinni að vera með á 154. Opna mótinu en eftir annan frábæran hring í röð er hann 18 holum frá því að vinna það.
Hinn 29 ára gamli hafði búist við að sleppa ferðinni til Southport þar sem eiginkona hans átti von á öðru barni þeirra en eftir að litla Belle kom snemma í heiminn, stökk Burns upp í flugvél. Þetta gætu reynst vera bestu tvær vikur lífs hans.
Burns rúllaði í fjórum fuglum á fyrstu átta holunum. Hann fékk tvo til viðbótar en líka einn skolla. Eftir opnunarhring á 73 höggum hefur hann náð tökum á þessum velli. Reyndar er heildarskor hans upp á 127 högg lægsta samanlagða skor á öðrum og þriðja hring í sögu Opna mótins, þremur höggum betra en Fuzzy Zoeller (1994) og Shane Lowry (2019).
Aldrei hefur Suður-Kóreumaður unnið Opna mótið en Si Woo Kim hefur gefið sér tækifæri til að skrá sig á spjöld sögunnar, aðeins tveimur höggum á eftir Burns.
Lucas Herbert, sem leiddi eftir gærdaginn, vantaði neistann sem sá hann leika á methring upp á 62 högg á föstudaginn og mun hefja lokahringinn þremur höggum á eftir.
Ástralinn hitti aðeins fimm af 14 brautum og fékk þrjá skolla á hring upp á 71 högg, eða einu yfir pari. Það hefði getað verið verra, þar sem Herbert var ónákvæmur af teig á 17. og 18. holu en gerði frábærlega í að bjarga pari á báðum holum.
Meðal níu efstu kylfinga er aðeins einn sem hefur sigrað á risamóti, enginn annar en Bryson Dechambeau en hann hefur verið í sviðsljósinu og fékk tvö víti dæmd á sig eftir annan hringinn, fyrir að laga aðstæður að bolta í röffi.
Það er einnig skandinavísk áskorun í fararbroddi með Ludvig Aberg og Rasmus Neergaard-Petersen. Aberg er oft nefndur sem einn besti kylfingur heims sem hefur ekki sigrað á risamóti.
Ríkjandi meistari Scottie Scheffler og Jon Rahm voru báðir svekktir með hringi á pari, 70 höggum, og hefja leik sex höggum á eftir. Það er ekki hægt að útloka þá úr topppbaráttunni en Rory Mcilroy hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar og er á tveimur undir pari, of langt frá toppbaráttunni.
Jon Rahm með eitt af höggum mótsins
Magical bunker play from Jon Rahm to save par on 18.
He's at -4 heading into the final round. pic.twitter.com/iDO9Ol4hhL
Rory vippar í holu
It's ridiculous. It's Rory.
A chip-in eagle for McIlroy on the 9th moves him to -2 for the Championship. pic.twitter.com/WW23Gm97Y9



